29 maí 2006

Massive Attack - Tear Drop

Deginum hefur formlega verið bjargað. Já, nefbrákanir, höfuðáverkar, bjórdrykkja og fleiri vandræðalegir þættir nýliðinnar nætur hafa fallið í skuggann á einkar ólöglegri bílferð í einkar æðislegum bíl, nánar tiltekið Prosche Carrera árgerð 2005. (Hefði þó verið til í að vera stödd á þýskri hraðbraut í stað hinnar íslensku Miklubrautar og Réttarholtsvegarins, m.a.) Ég er búin að vera brosandi hringinn síðan ég sá bílinn. Og bros þetta hefur ekki yfirgefið andlit mitt og mun ekki gera í bráð þrátt fyrir biturleika minn og ævarandi kaldhæðni. Takið nú lífinu létt og látið einfalda, ómerkilega hluti ekki vefjast fyrir ykkur. :D

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hehhe gott að þú ert jákvæð ég myndi samt ekki setjast upp í svona "bíldruslu"

29/5/06 14:13  
Blogger Katrín said...

heheh, sem segir mikið um vit þitt á bílum...:P

29/5/06 14:14  

Skrifa ummæli

<< Home