19 ágúst 2006

Foo Fighters - Come Back

Já, er ekki kominn tími á eitt blogg? Ansi langt síðan ég lét heyra frá mér síðast. Ég er enn á lífi, en tæplega þó. Er búin að vera veik síðustu tvær vikur. Come to think of it er ég reyndar búin að vera veik í eiginlega allt sumar. Eða allavega síðan ég kom heim frá Svíþjóð. Helvítis vesen og bull. Er búin að fara og láta kíkja á mig ansi oft eins og ég býst við að ég hafi nefnt í e-u bloggi. Fór t.d. í blóðprufu í fyrsta sinn á ævinni, I might add, og það var allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér það. Ég hef nú aldrei verið hrædd við nálar af nokkurri sort nema kannski nálar í saumavélum (e-ð sem ég kann ekki á, er ekki svona mikið kona)og nálar sem notaðar eru til að stinga mann í fingurinn (það er bara ómannúðlegt, já ómannúðlegt segi ég), en fólk hafði svona líst þessu fyrir mér sem e-i hræðilegri upplifun en ég upplifði það alls ekki svoleiðis, ég bara fann ekki fyrir þessu. Þó virðist það sem æðin mín hafi sprungið þar sem ég er komin með stærðarinnar marblett auk nálafarsins. Ég lít út eins og hinn reynslumesti heróínfíkill og þetta sár/marblettur gæti verið byrjun á eins og hendin á Jared Leto lítur út í Requiem for a Dream.

Ég er ekkert mjög málglöð þessa dagana sem er skrítið þar sem ég er búin að eyða flestum dögum síðustu vikna. (Ég er bara svona ótrúlega skemmtilegur félagsskapur, haha). Samt hefur svona ýmislegt drifið á daga mína síðan ég bloggaði síðast. Verslunarmannahelgin var frekar subbuleg á marga vegu. Þurfum ekkert að fara neitt frekar út í það. Svo er Hjalti bara farinn til Bandaríkjanna, nánar tiltekið Dallas, Texas og vegnar honum vel þar samkvæmt mínum heimildum. Ég hef verið ásökuð um að tala eins og sjötug kelling, mestmegnis af sjálfri mér, hehe. Ég fattaði að mér líkar ekkert voðalega vel við Kringlunna og það sérstaklega ekki þegar ég er það og líkaminn minn hagar sér eins og hann sé þunnur og ég er með 38 stiga hita.

21 dagur í Ítalíu. (Vonandi).

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

vid eigum to eitt sameiginlegt eftir allt saman fyrir utan ad hafa gaman af pride and predjudice, eg var alltaf mjog hraeddur vid saumavelar(eda kannski var tad leti eg veit tad ekki)
ps: tu talar ekki eins og sjotug meira svona eins og kona um attraett i hjolastol a grund

19/8/06 05:29  
Anonymous Nafnlaus said...

þú ert nú meiri kjáwninn minn!!;P en ég elska þig alveg í tætlur..það er samt sumt sem ég skildi ekki í þessu blessaða bloggi þínu heijj who's 70 ára núna hah??fleeeppp:D:D:D;);)

19/8/06 15:52  
Anonymous Nafnlaus said...

ég hata nálar..ég viðurkenni það alveg..:/

19/8/06 15:53  
Anonymous Nafnlaus said...

anonymous er ég btw..hehe krípí kríp:):)

19/8/06 15:54  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá cool bloggsíða hjá Hjalta bara strax komin í buisness en já katrín láta sér batna ekkert gaman að hafa þig svona

24/8/06 15:43  

Skrifa ummæli

<< Home