03 ágúst 2006

Our Lady Peace - 4am

Gæsahúðalag nr. 2 : 4am með Our Lady Peace
Það er e-ð við þetta lag sem hrífur mig, mér finnst það bara innilega gott.

Unnur mín hélt af stað til Argentínu í morgun og er núna í London vænti ég. Ég var of lengi að kveðja hana í gær og því er ég of þreytt í dag sem og að drepast úr harðsperrum.Já, fólk, vorkennið mér. (Haha). Aldrei að byrja að hreyfa sig eftir að hafa verið hreyfingarlaus letingi í fjóra mánuði. Ég get ekki einu sinni setið án þess að finna til. Nudd væri mjög vel þegið og sjálfboðaliðum er tekið opnum örmum :P.

Þótt ótrúlegt megi virðast hlakka ég samt til að fara í Hreyfingu á eftir. Það er svo gaman þegar er komin smá regla á lífið manns. Það er samt ekki beint regla á mínu lífi þar sem ég vakna aldrei á réttum tíma á morgnanna og næ aldrei að borða kvöldmat vegna anna. En samt, gott að vera byrjuð að hreyfa sig á ný. Þarf líka að ná af mér öllum þessum aukakílóum fyrir Ítalíu. Það gefur mér 36 daga.

Ohh, ég hef ekkert að segja.

Bless.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ja ég er ekki sammála þessu "ég hef ekkert að segja" mér finnst þú hafa sagt meira í þessu bloggi en öllum öðrum bloggum og auk þess hafi húmorinn í þessu bloggi verið sárt saknað í hinum sem þú hefur skrifað. :D Your biggest fan

4/8/06 17:11  
Anonymous Nafnlaus said...

fekk ad gista i madrid i eina nott ut af einhverjum seinkunum. var bara i raudvinschilli med itolum og argentinumonnum;P

6/8/06 16:22  
Anonymous Nafnlaus said...

Gott lag :)
Þú mátt alveg senda sjálfboðaliðana til mín þegar þeir verða of margir:P

14/8/06 01:12  

Skrifa ummæli

<< Home